Jesús mælti:
Vertu trúr allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins.
(Op. Jóh. 2,20)
Hiti: 5,4°C
Vindur: ANA 9m/s
Mestur vindur: 10m/s
Mesta vindhviða: 13m/s
Vegahiti: 7,7°C
Rakastig: 57%
Guðjón Ari
For: Erla Þóra Guðjónsdóttir
og Valentínus Þór Valdimarsson
(17. maí)
Ebba Sólný
For: Elísabet Ingadóttir
og Sigurður Dan Heimisson
(15. maí)
Ernir
For: Heiðrún Guðmundsdóttir
og Kristvin Bjarnason
(13. maí)
Halldóra Erla
For: Anna María Þráinsdóttir
og Þorvaldur Sveinsson
(12. maí)
Ína Karen
For: Sigurbjörg R. Ragnarsdóttir
og Vigfús Þór Árnason
(12. maí)
Sylvía
For: Kristín Sævarsdóttir
og Jón Mikael Jónasson
(5. maí)
Sigurður Árni Dagbjartsson
og Jeanevee Ablas Yuuboc
Melteigi 8
(28. apríl)

Vetrarstarf Kórs Akraneskirkju hófst um miðjan september. 50 félagar hófu söngstarf af krafti og fyrsta verkefni vetrarins eru tónleikar í Reykholti, sunnudaginn 9. október kl. 16.
Þar mun kórinn flytja m.a. lög af nýlegum geisladiski sem ber heitið Á hverjum degi. Á honum má heyra kórútsetningar Gunnars Gunnarssonar organista Laugarneskirkju. Einnig mun á tónleikunum hljóma veraldleg kórtónlist eftir íslenska ljóða- og lagahöfunda.
Um miðjan nóvember, eða í kringum Dag íslenkrar tungu, mun kórinn síðan flytja alíslenska dagskrá sem að mestu er byggð á velheppnuðum kaffihúsakvöldum sem fram fóru í lok apríl á þessu ári. Þar voru gömlu, góðu Skólaljóðunum gerð góð skil í tali og tónum. Leiklistarhæfileikar og jafnvel tónskáldahæfileikar kórfélaga munu fá að njóta sín.
Sannkallaðir stórtónleikar verða síðan á nýju ári. 7. janúar 2012 verða haldnir nýárstónleikar í Tónbergi, sal Tónlistarkólans á Akranesi. Fluttur verður kórlagaflokkur eftir jazzpíanistann George Shearing sem hann samdi við sonnettur eftir Shakespeare. Þetta er frábært tónlist eftir þennan heimsfræga snilling. George Shearing fæddist blindur en hóf ungur að leika á píanó og átti glæsilegan feril. Hann lést 14. febrúar síðastliðinn.
Þessi lagaflokkur hefur ekki verið fluttur á Íslandi og má því segja að um tónlistarviðburð sé að ræða. Á nýárstónleikunum munu einnig hljóma dægurperlur eftir Freymóð Jóhannesson (12. september) í nýjum kórútsetningum, ásamt öðru vel völdu efni.
Á vordögum er síðan fyrirhuguð utanlandsferð og má því segja að í nógu sé að snúast hjá kórnum. Við Akraneskirkju vinna kórfélgar fórnfúst og mikilvægt starf sem er í senn gefandi og skemmtilegt.
Fermingarbörn Akraneskirkju fengu góða gesti í heimsókn fyrr í þessum mánuði. Þá birtust þeir félagar, sr. Karl V. Matthíasson, vímuvarnaprestur Þjóðkirkjunnar, og Bjarni Arason, landskunn poppstjarna, óvænt í kennslustund. Aðeins sóknarpresturinn vissi af komu...
Biskup Íslands hefur falið sr. Halldóri Reynissyni að gegna afleysingarþjónustu í Garðaprestakalli á Akranesi í vetur. Hann mun leysa sóknarprest af eina langa helgi í mánuði, frá fimmtudegi til hádegis á mánudegi og messa þær helgar sem hann stendur vaktina...
Fullt var út úr dyrum í tónlistarguðsþjónustu í Akraneskirkju 13. febrúar sl. Hinn landskunni dægurlagasöngvari, Ragnar Bjarnason, söng þá mörg af þekktustu lögum sínum við undirleik Þorgeirs Ástvaldssonar. Sóknarpresturinn flutti stuttar hugvekjur á...