Jesús mælti:
Vertu trúr allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins.
(Op. Jóh. 2,20)
Hiti: 5,4°C
Vindur: ANA 9m/s
Mestur vindur: 10m/s
Mesta vindhviða: 13m/s
Vegahiti: 7,7°C
Rakastig: 57%
Guðjón Ari
For: Erla Þóra Guðjónsdóttir
og Valentínus Þór Valdimarsson
(17. maí)
Ebba Sólný
For: Elísabet Ingadóttir
og Sigurður Dan Heimisson
(15. maí)
Ernir
For: Heiðrún Guðmundsdóttir
og Kristvin Bjarnason
(13. maí)
Halldóra Erla
For: Anna María Þráinsdóttir
og Þorvaldur Sveinsson
(12. maí)
Ína Karen
For: Sigurbjörg R. Ragnarsdóttir
og Vigfús Þór Árnason
(12. maí)
Sylvía
For: Kristín Sævarsdóttir
og Jón Mikael Jónasson
(5. maí)
Sigurður Árni Dagbjartsson
og Jeanevee Ablas Yuuboc
Melteigi 8
(28. apríl)
Fermingarbörn Akraneskirkju fengu góða gesti í heimsókn fyrr í þessum mánuði. Þá birtust þeir félagar, sr. Karl V. Matthíasson, vímuvarnaprestur Þjóðkirkjunnar, og Bjarni Arason, landskunn poppstjarna, óvænt í kennslustund.
Aðeins sóknarpresturinn vissi af komu þeirra. Töluðu þeir við fermingarbörnin um skaðsemi vímuefna og Bjarni söng nokkur lög og lék sjálfur undir á gítar. Náðu þeir mjög vel til ungmennana.
Þessar myndir voru teknar í heimsókninni.
Biskup Íslands hefur falið sr. Halldóri Reynissyni að gegna afleysingarþjónustu í Garðaprestakalli á Akranesi í vetur. Hann mun leysa sóknarprest af eina langa helgi í mánuði, frá fimmtudegi til hádegis á mánudegi og messa þær helgar sem hann stendur vaktina...
Fullt var út úr dyrum í tónlistarguðsþjónustu í Akraneskirkju 13. febrúar sl. Hinn landskunni dægurlagasöngvari, Ragnar Bjarnason, söng þá mörg af þekktustu lögum sínum við undirleik Þorgeirs Ástvaldssonar. Sóknarpresturinn flutti stuttar hugvekjur á...
Tilhlökkun og spenna lá í loftinu þegar fyrsti fermingarhópurinn á þessu vori bjó sig undir athöfn í Akraneskirkju, sunnudaginn 20. mars s.l. 19 ungmenni staðfestu þá skírnarheitið. Tveir hópar verða fermdir (fyrir og eftir hádegi) sunnudagana 27. mars og 3. apríl...