Upplýsingar um Akraneskirkju

Aðalvalmynd

Útfarir

Laugardagur 25. febrúar

kl. 14

Sigríður Guðmundsdóttir

Höfða

Síðustu útfarir

Orð dagsins


Jesús mælti:

Vertu trúr allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins.

(Op. Jóh. 2,20)


Staðsetning


Akranes

Veður við Akrafjall


Kl. 1

Hiti: 3,2°C

Vindur: ANA 3m/s

Mestur vindur: 5m/s

Mesta vindhviða: 8m/s

Vegahiti: °C

Rakastig: 81%


Skírnir


Eva Hrönn

For: Karen Lind Ólafsdóttir

og Ásgeir Sævarsson

(18. febrúar)


Jóhannes Kári

For: Ursula Ragna Ásgrímsdóttir

og Jóhannes Hjálmar Smárason

(18. febrúar)


Kristofer Erik

For: Unnur Aðalheiður Jónsdóttir

og Jón Ásgeir Valsson

(18. febrúar)


Haukur Ævar

For: Þóra Atladóttir

og Ármann Gestsson

(12. febrúar)


Aldís Ýr

For: Anna Ósk Sigurgeirsdóttir

og Kristófer Jónsson

(11. febrúar)


Dagný Lára

For: Ragnheiður Smáradóttir

og Jón Ottesen

(11. febrúar)


Viktor Hugi

For: Aldís Ýr Ólafsdóttir

og Sigurgeir Viktorsson

(11. febrúar)


Fleiri skírnir

Hjónavígslur


Svanur Ingi Halldórsson

og Helga Björk Helgadóttir

Stekkjarholti 16

(4. febrúar)


Fleiri hjónavígslur

Þriðjudagur 3. janúar 2012

Nýárstónleikar Kórs Akraneskirkju

Laugardaginn 7. janúar heldur Kór Akraneskirkju nýárstónleika í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og bera yfirskriftina „2012“. Þetta verður mikil tónlistarveisla í byrjun ársins og óhætt að lofa góðri skemmtun. Fyrir hlé er efnisskráin  byggð upp á þjóðlegu efni þar sem íslensk þjóðlög og frumlegar túlkanir á ljóðum íslenskra skálda munu hafa sinn sess og má þar sérstaklega nefna Fjallgöngu eftir Tómas Guðmundsson og Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson en þessi stórbrotnu kvæði verða flutt með tilþrifum. Einnig verða flutt fjögur dægurlög úr smiðju Freymóðs Jóhannssonar (12. september) en þau hefur Skarphéðinn Hjartarson útsett sérstaklega fyrir kórinn.

 

Eftir hlé og léttar veitingar verður fluttur kórlagaflokkur eftir jazzpíanistann George Shearing sem hann samdi við texta eftir William Shakespeare. Þetta er frábær tónlist eftir þennan heimsfræga snilling. Geroge Shearing fæddist blindur en hóf ungur að leika á píanó og átti glæsilegan feril.  Þessi lagaflokkur hefur ekki verið fluttur á Íslandi og má því segja að um tónlistarviðburð sé að ræða.

 

Með Kór Akraneskirkju koma fram á tónleikunum þeir Gunnar Gunnarsson píanóleikari og Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari. Þeir munu leika með kórnum en einnig koma fram einir og sér og flytja lög úr smiðju Shearing. Félagar úr kórnum munu einnig stíga á stokk.  Stjórnandi Kórs Akraneskirkju er Sveinn Arnar Sæmundsson.

 

Forsala á tónleikana er í versluninni Bjargi við Stillholt, Akranesi.

Þriðjudagur 20. desember 2011

Jólatrésskemmtun sunnudagaskólabarna

Jólatrésskemmtun sunnudagaskólabarna  var haldin í safnaðarheimilinu Vinaminni sl. sunnudag.   Skemmtunin hófst með því að stúlknakór undir stjórn Sveins Arnars flutti helgileik. Því næst var gengið í kringum jólatréð og sungnir jólasálmar. Jólasveinninn...

Lesa áfram


Þriðjudagur 20. desember 2011

Sr. Björn Jónsson látinn

Sr. Björn Jónsson, fyrrum sóknarprestur hér á Akranesi og prófastur, lést í morgun, 20. desember, á Sjúkrahúsi Akraness. Hann var 84 ára að aldri. Sr. Björn fæddist á Þverá í Blönduhlíð í Skagafirði 7. október 1927. Hann þjónaði sem sóknarprestur í Keflavík og á Akranesi...

Lesa áfram


Mánudagur 5. desember 2011

Jólin og sorgin

Séra Halldór Reynisson

Sr. Halldór Reynisson heldur fyrirlestur um Jólin og sorgina í Safnaðarheimilinu Vinaminni, nk. mánudagskvöld, 12. desember kl. 20.   Aðventa, jól og áramót eru syrgjendum oft erfiður tími. Autt sæti við veisluborð minnir á fráfall ástvinar. Þeim getur...

Lesa áfram