Jesús mælti:
Vertu trúr allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins.
(Op. Jóh. 2,20)
Hiti: 5,4°C
Vindur: ANA 9m/s
Mestur vindur: 10m/s
Mesta vindhviða: 13m/s
Vegahiti: 7,7°C
Rakastig: 57%
Guðjón Ari
For: Erla Þóra Guðjónsdóttir
og Valentínus Þór Valdimarsson
(17. maí)
Ebba Sólný
For: Elísabet Ingadóttir
og Sigurður Dan Heimisson
(15. maí)
Ernir
For: Heiðrún Guðmundsdóttir
og Kristvin Bjarnason
(13. maí)
Halldóra Erla
For: Anna María Þráinsdóttir
og Þorvaldur Sveinsson
(12. maí)
Ína Karen
For: Sigurbjörg R. Ragnarsdóttir
og Vigfús Þór Árnason
(12. maí)
Sylvía
For: Kristín Sævarsdóttir
og Jón Mikael Jónasson
(5. maí)
Sigurður Árni Dagbjartsson
og Jeanevee Ablas Yuuboc
Melteigi 8
(28. apríl)
Aðventuhátíð Akranessafnaðar var haldin í Vinaminni sl. sunnudagskvöld. Um 200 manns sóttu samkomuna. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá í tali og tónum. Ræðumaður kvöldsins var Unnur H. Arnardóttir. Minntist hún sinna eigin bernskujóla í Borgarnesi þar sem hún er fædd og uppalin.
Ræðumaður kvöldsins var Unnur H. Arnardóttir. Minntist hún sinna eigin bernskujóla í Borgarnesi þar sem hún er fædd og uppalin.
Börn úr TTT (10-12 ára starfi) kirkjunnar sungu jólalög og lásu jólasögu. Félagar úr Kór Akraneskirkju sungu einnig nokkur tónverk. Áður en fólk hélt heim af aðventuhátíð var því, venju samkvæmt, boðið að þiggja léttar veitingar í fordyri safnaðarheimilis.
Fyrr um daginn var haldin aðventuhátíð á vegum Akraneskirkju á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða. Hún var líka mjög vel sótt. Boðið var upp á svipaða dagskrá.
Sr. Halldór Reynisson heldur fyrirlestur um Jólin og sorgina í Safnaðarheimilinu Vinaminni, nk. mánudagskvöld, 12. desember kl. 20. Aðventa, jól og áramót eru syrgjendum oft erfiður tími. Autt sæti við veisluborð minnir á fráfall ástvinar. Þeim getur...
Vetrarstarf Kórs Akraneskirkju hófst um miðjan september. 50 félagar hófu söngstarf af krafti og fyrsta verkefni vetrarins eru tónleikar í Reykholti, sunnudaginn 9. október kl. 16. Þar mun kórinn flytja m.a. lög af nýlegum geisladiski sem ber heitið Á...
Fermingarbörn Akraneskirkju fengu góða gesti í heimsókn fyrr í þessum mánuði. Þá birtust þeir félagar, sr. Karl V. Matthíasson, vímuvarnaprestur Þjóðkirkjunnar, og Bjarni Arason, landskunn poppstjarna, óvænt í kennslustund. Aðeins sóknarpresturinn vissi af komu...