Upplýsingar um Akraneskirkju

Aðalvalmynd

Útfarir

Laugardagur 25. febrúar

kl. 14

Sigríður Guðmundsdóttir

Höfða

Síðustu útfarir

Orð dagsins


Jesús mælti:

Sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar.

(Matt. 28,20b)


Staðsetning


Akranes

Veður við Akrafjall


Kl. 1

Hiti: 3,2°C

Vindur: ANA 3m/s

Mestur vindur: 5m/s

Mesta vindhviða: 8m/s

Vegahiti: °C

Rakastig: 81%


Skírnir


Eva Hrönn

For: Karen Lind Ólafsdóttir

og Ásgeir Sævarsson

(18. febrúar)


Jóhannes Kári

For: Ursula Ragna Ásgrímsdóttir

og Jóhannes Hjálmar Smárason

(18. febrúar)


Kristofer Erik

For: Unnur Aðalheiður Jónsdóttir

og Jón Ásgeir Valsson

(18. febrúar)


Haukur Ævar

For: Þóra Atladóttir

og Ármann Gestsson

(12. febrúar)


Aldís Ýr

For: Anna Ósk Sigurgeirsdóttir

og Kristófer Jónsson

(11. febrúar)


Dagný Lára

For: Ragnheiður Smáradóttir

og Jón Ottesen

(11. febrúar)


Viktor Hugi

For: Aldís Ýr Ólafsdóttir

og Sigurgeir Viktorsson

(11. febrúar)


Fleiri skírnir

Hjónavígslur


Svanur Ingi Halldórsson

og Helga Björk Helgadóttir

Stekkjarholti 16

(4. febrúar)


Fleiri hjónavígslur

Starfsfólk Akraneskirkju

Séra Eðvarð Ingólfsson
sóknarprestur

 

Séra Eðvarð IngólfssonSveinn Arnar organisti

 

 

Eðvarð hefur verið sóknarprestur á Akranesi frá 1997. Áður var hann sóknarprestur á Skinnastað í Öxarfirði í tvö ár.

 

Eðvarð fæddist í Reykjavík 25. apríl 1960 en ólst upp á Hellissandi. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 1981 og lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1995. Einnig dvaldist hann einn vetur við nám í Bandaríkjunum.

 

Eðvarð var í nokkur ár — áður en hann hóf guðfræðinám — ritstjóri barnablaðsins Æskunnar og dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu, bæði rás 1 og rás 2. Hann hefur auk þess ritað 15 bækur, einkum unglingabækur og ævisögur.

 

Eðvarð er kvæntur Bryndísi Sigurjónsdóttur og eiga þau þrjú börn.

 

 

Viðtalstími alla virka daga
nema mánudaga frá kl 11:30 - 12:30
— eða eftir samkomulagi —

 

Akraneskirkja, 300 Akranes

 

Símanúmer, 433-1502

 

Bílasími, 855-1164

 

Fax, 433-1503

 

Tölvupóstur

 


Sveinn Arnar Sæmundsson
organisti og kórstjóri

 

 

Sveinn Arnar hefur verið organisti og kórstjóri við Akraneskirkju frá 2002. Áður starfaði hann sem tónmenntakennari á Akureyri og afleysingarorganisti við Akureyrarkirkju, auk þess sem hann hafði umsjón með barna- og unglingakór kirkjunnar. Einnig starfaði hann sem organisti í Skagafirði og þar stofnaði hann og stjórnaði kammerkór.

 

Sveinn Arnar fæddist 16. maí 1973 á Sauðárkróki en ólst upp í Akrahreppi í Skagafirði. Hann lauk 8. stigi í orgelleik og söng og lærði kórstjórn. Hann lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar haustið 2006.

 

Sveinn Arnar er kvæntur Þórgunni Stefánsdóttur og eiga þau son saman en hún á þrjá syni fyrir.

 


 

 

Indriði Valdimarsson
skrifstofustjóri, útfararstjóri og kirkjugarðsvörður

 

Indriði ValdimarssonMagnea G. Sigurðardóttir

 

Indriði hefur starfað hjá Akraneskirkju frá 2001. Hann vann áður hjá Prentverki Akraness - í ein 36 ár, lengst sem framkvæmdastjóri frá 1982.

 

Indriði er fæddur 22. desember 1948 á Akranesi og hefur átt þar heima alla sína ævi. Hann er prentari að mennt.

 

Indriði hefur mikla reynslu af kirkjulegu starfi. Hann hefur m.a. sungið með kór Akraneskirkju í meira en aldarfjórðung og var formaður stjórnar kórsins um tíma. Sömuleiðis sat hann í sóknarnefnd í meira en áratug, síðast sem formaður.

 

Indriði er kvæntur Sigurlaugu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú börn.

 


 

Magnea G. Sigurðardóttir
umsjónarmaður safnaðarheimilis

 

 

Magnea hefur verið umsjónarmaður safnaðarheimilisins frá 1992. Áður hafði hún starfað árum saman sem starfsstúlka á sjúkrahúsi og dagheimili.

 

Magnea fæddist 6. september 1943 á Hellissandi og ólst þar upp. Hún er gagnfræðingur frá Héraðsskólanum á Skógum undir Eyjafjöllum.

 

Akraneskirkja hefur lengi notið atorku Magneu. Hún hefur, auk starfa í safnaðarheimilinu, sungið með kirkjukórnum í tæpa fjóra áratugi og einnig sat hún í sóknarnefnd í átta ár.

 

Magnea er gift Pétri Steinari Jóhannessyni og eiga þau tvo syni.