Nú er samkomubann á Íslandi. Kirkjulegar athafnir eru meðal þess sem bannið nær til. Útfarir mega því aðeins fara fram með ákveðnum skilyrðum. Annars vegar felast þau í því að fjöldi viðstaddra er takmarkaður en hins vegar verða að vera tveir metrar hið minnsta á milli kirkjugesta.

Vegna þessa banns verður fyrirkomulag útfara við Akraneskirkju með þessum hætti á meðan bannið er í gildi:

1) Útfarir verða ekki opnar almenningi. Kistulagningar verða á sama stað í beinum tengslum við útfarirnar.

2) Ekki er hægt að taka við fleiri gestum í kirkjuna en 20. Fjölskyldur af sama heimili mega sitja saman. Kirkjuverðir raða niður í kirkjuna í samráði við aðstandendur.

3) Unnt er að streyma athöfnum í Iðnskólann og Vinaminni. Þar eru möguleikar á sætum fyrir 20 manns á hvorum stað. Einnig er hægt að streyma útförum á lokað svæði á netinu.

4) Erfidrykkjur í Safnaðarheimili eru ekki mögulegar.

Prestar Akraneskirkju munu haga þjónustu sinni og verkaskiptingu þannig að engin óþarfa áhætta sé tekin og í sem bestu samræmi við tilgang samkomubannsins.

Þessar aðstæður krefjast góðs samstarfs og tillitssemi. Starfsfólk Akraneskirkju mun gera allt sem í þess valdi stendur til að gera fólki unnt að kveðja ástvini fallega og virðulega á þessum sérstöku tímum sem vonandi verða fljótir að líða. Nánari tilhögum útfara er ætíð í samstarfi við aðstandendur.