Fastan gengur í garð á öskudag, miðvikudaginn 18. febrúar og stendur fram að páskum. Hefð hefur skapst fyrir föstumessum í Hallgrímskirkju í Saurbæ á miðvikudagskvöldum alla föstuna, frá öskudegi til miðvikudags fyrir pálmasunnudag. Í messunum er Passíusálmur dagsins lesinn, auk lesturs úr píslarsögunni, prédikun og altarisganga.
Fyrsta föstumessan er öskudagsmessa en sérstakt einkenni hennar er að þar þiggja þau sem það vilja öskukross á enni sitt sem tákn um vilja sinn til að fylgja Kristi fjörutíu daga föstunnar. Öskudagur er fyrsti dagur föstunnar. Erindi öskudagsins er tilboð um langa gönguferð í fjörutíu daga til Jerúsalem. Það er gönguferð andlegrar iðju með Jesú sjálfum. Fasta er hreinsun og iðrun. Ekki matur og drykkur eða aðrar nauðþurftir, heldur tími með Kristi og tími fyrir hann.
Séra Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup emeritus og ábúandi í Saurbæ, þjónar í föstumessunum ásamt prestum prestakallsins. Hann býður einnig viðstöddum í tesopa eftir messu.