Sunnudagurinn 22. febrúar er konudagur og þó hann sé ekki kirkjulegur dagur, heldur markar hann upphaf góu samkvæmt gamla tímatalinu, höfum við gjarnan helgað messum þessa dags konum. Það gerum við einnig að þessu sinni í messum dagsins þar sem sálmar eru flestir eftir konur og ritningarlestrar tengdir frásögnum af konum í Biblíunni.
Tvær konudagsmessur eru í prestakallinu:
Hallgrímskirkja í Saurbæ kl. 11
Kór Saurbæjarprestakalls syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur, prestur sr Ólöf Margrét Snorradóttir. Boðið er til messukaffis í gamla prestsetrinu í Saurbæ eftir messu.
Akraneskirkja kl. 20
Sr Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar, Konur úr Kór Akraneskirkju og Kvennakórinn Ymur syngja, stjórnandi er Sigríður Elliðadóttir, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Meðhjálpari er Helga Sesselja Ásgeirsdóttir. Kaffisopi í Safnaðarheimilinu Vinaminni að messu lokinni.
Velkomin til kirkju!
Athugið að sunnudagaskólinn er í vetrarleyfi 22. febrúar.