útfarir temp

Forsíða/útfarir temp
útfarir temp2021-03-25T08:34:43+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Fréttasafn

Akraneskirkja – Kvöldmessa sunnudaginn 21. ágúst kl. 20 – Bænastund miðvikudaginn 24. ágúst kl. 12.15

Sunnudaginn 21 ágúst. Kvöldmessa kl. 20 sr. Þráinn Haraldsson þjónar fyrir altari, Kirkjukór Akraneskirkju syngur undir stjórn Hilmars Agnarssonar organista. Verið velkomin til kirkju Fyrsta bænastund haustsins verður í Akraneskirkju miðvikudaginn 24. ágúst  kl. 12.15. Fyrirbænir og ljúfir tónar, súpa í Vinaminni eftir stundina.          

18. ágúst, 2022|

Messa á sumarkvöldi

Akraneskirkja sunnudaginn 7. ágúst kl. 20 Helgihald í Garða- og Saurbæjarprestakalli hefst að nýju þann 7. ágúst með lesmessu í Akraneskirkju. Í lesmessum er enginn söngur en allur texti lesinn. Valdir ritningartextar og sálmar, hugleiðing og altarisganga. Sr. Ólöf Margrét þjónar, meðhjálpari Ósk Jónsdóttir. Velkomin til messu á sumarkvöldi.    

3. ágúst, 2022|

Tónleikadagskrá fyrir sumartónleika Hallgrímskirkju í Saurbæ

Nú er loks fullmótuð glæsileg tónleikadagskrá fyrir sumarið á hverjum sunnudegi frá 19. júní til 7. ágúst. Allir velkomnir og veitingastaðir í nágrenninu taka fagnandi við gestum með ómótstæðileg tilboð og matseðla. Sunnudagur 26. júní kl. 16 - Rósa, Rímsen og Tríó Ziemsen Sunnudagur 3. júlí kl. 16 - Íslensk sönglög ásamt Grieg og Schubert Sunnudagur 10. júlí kl. 16 - Sveitadansar Bartoka, Copland og Prokofiev Sunnudagur 17. júlí kl. 16 - Bach, Bolero, [...]

24. júní, 2022|

Hilmar Örn ráðinn organisti

Á dögunum var auglýst eftir organista og kórstjóra við Akraneskirkju. Fjórar umsóknir bárust  og hefur sóknarnefndin boðið Hilmari Erni Agnarssyni starfið. Hilmar Örn hefur starfað í afleysingu við Akraneskirkju undanfarið ár. Hilmar Örn er menntaður í Þýskalandi og hefur langa reynslu sem organisti. Hann hefur starfið við Grafarvogskirkju, Kristskirkju í Reykjavík, lengst var hann organisti við Skálholtsdómkirkju og hefur stjórnað fjölmörgum kórum með góðum árangri. Við bjóðum hann velkomin til starfa sem fastráðin starfsmaður [...]

22. júní, 2022|

Þjóðhátíðardagurinn

Á þjóðhátíðardaginn er hátíðarguðþjónusta við Akraneskirkju kl. 13. Sr. Þráinn Haraldsson þjónar, Védís Agla Reynisdóttir nýstúdent heldur ræðu. Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel og Kór Akraneskirkju syngur. Hátíðarkaffi kirkjunefndar stendur frá kl.14-17 í Vinaminni. Verð kr. 2500 fyrir fullorðna, kr 500 fyrir börn 6-12 ára. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Athugið enginn posi er á staðnum. Messan í Hvalfjarðarsveit fellur því miður niður þetta árið vegna framkvæmda við Innra-Hólmskirkju en kirkjan verður [...]

16. júní, 2022|

Hvítasunnuhelgin

Hvítasunnan er fimmtíu dögum eftir páska. Hún er fæðingarhátíð kirkjunnar, hátíð heilags anda. Hún minnir okkur á að Jesús hefur brotið og afnumið alla múra milli manna og þjóða og kynþátta og milli Guðs og manna, og myndað nýtt samfélag, kirkjuna. Guð hefur endurfætt okkur til þess samfélags í skírninni. Þessari stórhátíð fögnum við í Garða- og Saurbæjarprestakalli. Á hvítasunnudag eru tvær guðsþjónustur. Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 11. Sr. Þráinn Haraldsson þjónar fyrir altari [...]

31. maí, 2022|

Uppstigningardagur: vorferð eldri borgara starfsins og guðsþjónusta í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Uppstigningardagur 26. maí - kirkjudagur aldraðra - vorferð Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 11, sr. Ólöf Margrét þjónar en Hljómur, sönghópur feban, leiðir söng undir stjórn Lárusar Sighvatssonar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Vorferð eldri borgara starfsins við Akraneskirkju upp í Hvalfjörð, brottför kl. 10 frá Vinaminni. Guðsþjónusta í Saurbæ, súpa snædd á Hótel Glym og endað í Hernámssetrinu. Áætluð heimkoma kl. 16. Skráning og frekari upplýsingar í síma 433 1500 og á [...]

20. maí, 2022|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top