Nú hafa fermingardagar vorsins 2024 verið ákveðnir. Fermingarathafnir í Akraneskirkju eru:

Laugardaginn 23. mars kl. 10.30 og 13.30

Pálmasunnudagur 24. mars kl. 10.30 og 13.30

Laugardaginn 6. apríl kl. 10.30 og 13.30

Sunnudaginn 7. apríl kl. 10.30 og 13.30

Hvítasunnudagur 19. maí kl. 11.00

Fermt verður í Hallgrímskirkju í Saurbæ á skírdag 28. mars kl. 11, í Leirárkirkju sunnudaginn 14. apríl kl. 11 og í Innra-Hólmskirkju á Hvítasunnudag 19. maí kl. 14.00

SKRÁNING FER FRAM HÉR

Fermingarstarfið heitir öðru nafni skírnarfræðsla og hefur eftirfarandi meginmarkmið:

  • Að kenna grundvallaratriði kristinnar trúar.
  • Að vekja og efla trú á Jesú Krist, Drottin vorn og frelsara.
  • Að virkja fermingarbörnin í starfi safnaðarins, t.d. í helgihaldi.

Fermingarstarf Akraneskirkju hefst  með sumarnámskeiði 14-17. ágúst.

Hvað um þá sem ekki komast á sumarnámskeiðið?

Þau ungmenni, sem ekki komast á sumarnámskeiðið í ágúst, mæta í staðinn í fermingarfræðslu 25. ágúst, 1. sept og 8.sept. Tímasetningar kynntar síðar.

 

Öll fermingarbörnin koma svo til fræðslu í Safnaðarheimilinu Vinaminni einu sinni í mánuði frá síðustu viku í september – fram að fermingu. Ungmennin mæta með sínum skóla, sitthvorn daginn. Kennsludagar verða kynntir í haust þegar stundatafla skólanna liggur fyrir.


Guðsþjónustur og æskulýðsfélag

Fermingarbörnin eiga að sækja 10 guðsþjónustur yfir vetrartímann.


Vatnaskógarferð

Fermingarbörnin munu sækja fermingarnámskeið í Vatnaskógi. Gist er tvær nætur og fara báðir skólarnir saman í ferðalagið. Vatnaskógur er skemmtilegur staður í Svínadal í Hvalfirði, þar reka Skógarmenn KFUM sumarbúðir og taka á móti fermingarbörnum á haustin. Námskeiðið er blanda fræðslu, leikja og skemmtunar.


 

Söfnun fermingarbarna

Á hverju hausti ganga fermingarbörn í hús og safna fjármunum handa fátækum í Afríku. Þau fá leiðbeiningar áður en þau leggja af stað, tvö og tvö saman. Með þessu skapast kjörið tækifæri fyrir þau til að meðtaka boðskap Krists um náungakærleika á áþreifanlegan hátt. Á unglingsárum, þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl, er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif.