Þann 23. ágúst árið 1896 var Akraneskirkja vígð við hátíðlega athöfn. Við minnumst þess í hátíðarmessu sunnudaginn 23. ágúst nk. kl. 11 og í messukaffi á eftir í Vinaminni. Safnaðarheimilið Vinaminni var tekið í notkun 24. ágúst 1986, fyrir fjörutíu árum, við fögnum því sömuleiðis.

Í messunni þjóna prestar safnaðarins, sr Þráinn Haraldsson sóknarprestur, sr Ólöf Margrét Snorradóttir prestur og sr Þóra Björg Sigurðardóttir prestur. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson, Hrefna Berg leikur á fiðlu, Kór Akraneskirkju syngur og leiðir almennan söng. Meðhjálpari er Helga Sesselja Ásgeirsdóttir.

Verið velkomin til messu og kaffisamsætis í Vinaminni!

Má bjóða þér sæti?
Eftir 40 ára notkun er farið að sjá á ýmsu í Vinaminni, til að mynda stólunum. Því höfum við stofnað Stólasjóð til að endurnýja stóla safnaðarheimilisins, sóknarbörnum og velunnurum er velkomið að styðja sjóðinn og ,,fá sér sæti“. Leggja má inn á reikning í nafni Akraneskirkju, bankareikningur númer 0133-15-015076 á kennitölu kirkjunnar, sem er  410169-5849. Tekið skal fram að Akraneskirkja er á almannaheillaskrá. Peningagjafir til kirkjunnar er því frádráttarbærar frá skatti.