Kirkjan.is rakst á fallegt aðventudagatal Akraness og þann 11. desember voru prestarnir í Garða- og Saurbæjarprestakalli gestir dagatalsins sem þau Hlédís Sveinsdóttir og Ólafur Gunnarsson stjórna. Það er tekið upp í Stúkuhúsinu á Akranesi.

Hér taka prestarnir lagið, þau sr. Þráinn Haraldsson, sr. Jónína Ólafsdóttir og sr. Þóra Björg Sigurðardóttir. Þau eru öll eins og vera ber, vel tengd samfélagi sínu og hefur hvort tveggja styrk af því, kirkja og samfélag.

Hér þarf ekki fleiri orð – heldur aðeins að hlusta og horfa!

https://kirkjan.is/frettir/frett/2020/12/13/Songgladir-prestar/