Sr. Eðvarð Ingólfsson, fyrrum sóknarprestur á Akranesi, lést 28. janúar sl. á Ási í Hveragerði.
Útför Eðvarðs fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 13. febrúar kl. 13. Boðið er upp á að koma saman í Akraneskirkju og horfa á streymi frá athöfninni.
Eðvarð fæddist í Reykjavík þann 25. apríl 1960 en ólst upp á Hellissandi. Foreldrar hans voru Guðný Jónína Þórarinsdóttir og Ingólfur Eðvarðsson. Systur hans voru sex. Eðvarð var kvæntur Bryndísi Sigurjónsdóttur kennara, f. 1963. Börn þeirra eru Elísa, f. 1986, Ingólfur, f. 1989, og Sigurjón, f. 1996. Barnabörnin eru fjögur.
Eðvarð lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 1981 og embættisprófi í guðfræði 1995. Eðvarð vígðist til Skinnastaðar í Öxarfirði í febrúar 1996 en kom hingað á Akranes á aðventunni árið eftir og var sóknarprestur hér í 22 ár. Hann setti sinn svip á samfélagið á Akranesi og var farsæll í starfi og skildi eftir sig djúp spor hjá sóknarbörnum sínum er hann þurfti að hætta störfum langt fyrir aldur fram vegna erfiðra veikinda.
Eðvarð var einnig afkastamikill rithöfundur og eftir hann liggja nokkrar ævisögur auk barna- og unglingabóka sem nutu mikilla vinsælda. Einnig starfaði hann í nokkur ár sem dagskrárgerðarmaður á Útvarpinu, fyrst á Rás eitt og síðan Rás 2. Einnig var hann ritstjóri tímaritsins Æskunnar á níunda áratuginum.
Við vottum Bryndísi og börnum þeirra og barnabörnum sem og ástvinum öllum, innilegrar samúðar.
Guð blessi minningu Eðvarðs Ingólfssonar.