Miðvikudagur 4. febrúar

Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10. Súpa í Vinaminni eftir stundina, kr. 1.000.

Karlakaffi í Vinaminni kl. 13:15
Haraldur Sturlaugsson er gestur Karlakaffis þennan mánuðinn. Hann þarf vart að kynna fyrir Skagamönnum, það sem margir vita einnig er að Haraldur hefur mikinn áhuga á gömlum ljósmyndum og sögu Akraness og mun hann sýna myndir og segja frá ýmsu úr sögu bæjarins. Umræður, kaffi og meðlæti í góðum félagsskap.

Velkomnir í Karlakaffið. Kr. 1.000.