Akraneskirkja
Skírdagur – helgistund kl. 20 þar sem lagt er á borð fyrir hina heilögu kvöldmáltíð. Í lok stundar er altarið afskrýtt og ljósin slökkt, gengið út í þögn. Sr Þóra Björg Sigurðardóttir þjónar fyrir altari, Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Meðhjálpari Helga Sesselja Ásgeirsdóttir.
Föstudagurinn langi – helgistund við krossinn kl. 20. Sr Jón Ármann Gíslason les úr píslarsögunni. Konur úr Kammerkór Akraneskirkju syngja, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Meðhjálpari Helga Sesselja Ásgeirsdóttir.
Páskadagur – hátíðarmessa kl. 11. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson, prestur Ólöf Margrét Snorradóttir. Meðhjálpari Fjóla Lúðvíksdóttir. Að lokinni messu er boðið upp á heitt súkkulaði í Safnaðarheimilinu Vinaminni.
Hallgrímskirkja í Saurbæ – frá Betaníu til Emmaus ríkuleg dagskrá í dymbilviku og á páskum
Helgistund í kirkjunni kl. 18 í dymbilviku.
Skírdagur – kl. 16: Tónleikar Mótettukórs Reykjavíkur, sungin eru verk eftir Bach ásamt íslenskum kórverkum við sálma sr Hallgríms Péturssonar. Stjórnandi kórsins er Stefan Sand og orgelleikari er Guðrún Óskarsdóttir. Hollvinafélag Hallgrímskirkju í Saurbæ styrkir þennan viðburð og er aðgangur ókeypis.
Föstudagurinn langi – Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni kl. 13. Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, les fyrsta sálm og Kór Saurbæjarprestakalls hins forna syngur. Stjórnandi er Margrét Bóasdóttir og Steinunn Árnadóttir leikur á orgel. Síðan taka við 24 lesarar og milli lesta flytja Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, sópran og Steinunn Árnadóttir, orgel, texta Hallgríms við lög sem samin hafa verið á 20. og 21. öld. Öll lögin er að finna í sálmabók þjóðkirkjunnar sem kom út haustið 2022. 25. passíusálmur verður lesinn úti við leiði sálmaskáldsins.
Eintök af Passíusálmunum verða til láns svo hægt er að njóta flutningsins og fylgjast með á bókinni. Hægt er að koma og fara meðan á lestrinum stendur.
Laugardagur 4. apríl
Miðnæturmessa kl. 22:30 – sr Kristján Valur þjónar.
Páskadagur – hátíðarmessa kl. 08. Í upphafi messu er nýtt orgel kirkjunnar helgað til þjónustu. Kór Saurbæjarprestakalls syngur, stjórnandi Margrét Bóasdóttir, organisti Steinunn Árnadóttir. Sr Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar ásamt sr Kristjáni Val Ingólfssyni. Að messu lokinni er boðið til morgunverðar í Saurbæ.
Annar dagur páska – göngumessa kl. 14. Gengið að Hallgrímssteini og endað á grunni gömlu kirkjunnar við leiði sr Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur.
Hjúkrunarheimilið Höfði
Páskadagur – hátíðarguðsþjónusta kl. 12:45. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson, sr Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.