„Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn minni á bug né tók frá mér miskunn sína.“ (Slm 66.20)
Fimmti sunnudagur eftir páska nefnist hinn almenni bænadagur, forveri hans var kóngsbænadagur en í lok 19. aldar var hann lagður niður hér á landi, en í staðinn tekinn upp hinn almenni bænadagur til að þjóðin sameinist í bæn. Það gerum við í messu í Akraneskirkju sunnudaginn 10. maí sem er einnig mæðradagurinn.

Kvöldmessa í Akraneskirkju sunnudaginn 10. maí kl. 20.
Í tilefni mæðradagsins hvetjum við konur til að mæta í þjóðbúning.

Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti Hilmar Örn Agnarsson, Kór Akraneskirkju leiðir söng. Meðhjálpari Helga Sesselja Ásgeirsdóttir.

Eftir messu er boðið upp á kaffisopa í anddyri Vinaminnis.

Velkomin til messu!