Á sjómannadaginn 7. júní verður minningarstund við minnisvarða um týnda sjómenn í Akraneskirkjugarði kl. 10.
Að því loknu verður sjómannadagsmessa kl. 11 í Akraneskirkju. Í messunni verða tveir sjómenn heiðraðir. Blómsveigur lagður að minnismerki sjómanna á Akratorgi að messu lokinni.
Einnig verður guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Höfða kl. 12:45.
Verið velkomin