Það verður hátíðarmessa kl. 13 í Akraneskirkju á 17. júní. Séra Jón Ármann þjónar og nýstúdentinn Víkingur Geirdal Birnuson flytur hátíðarræðu. Hilmar Örn Agnarsson er organisti og félagar úr Kór Akraneskirkju leiða söng.
Eftir messuna verður Kirkjunefnd Akraneskirkju með sína árlegu 17. júní kaffisölu í Safnaðarheimilinu Vinaminni frá kl. 14-17. Það verður posi á staðnum.

 

Athugið að það verður ekki messa í Akraneskirkju 14. júní.