Það er ótvírætt merki um að sumarið fer senn að kveðja og haustið að ganga í garð þegar við hittum væntanleg fermingarbörn næsta vors!

Miðvikudaginn 19. ágúst og fimmtudaginn 20. ágúst er sumarnámskeið fermingarbarna í Vinaminni. Nemendur Heiðarskóla og Brekkubæjarskóla mæta kl. 9 báða dagana og eru til 12. Nemendur Grundaskóla koma kl. 13 og eru til kl. 16. Skemmtileg dagskrá báða dagana, inni og úti.

Fermingarferðalag í Vatnaskóg verður 6.-8. september og svo hittum við börnin mánaðarlega í vetur.

Enn er hægt að skrá barn í fermingarundirbúninginn hér.

Frekari upplýsingar veita prestarnir.