Kirkjugarðurinn á Akranesi hefur fengið þrjá bekki að gjöf frá tveimur líknarfélögum á Akranesi. Einn bekkur frá Kiwanisklúbbnum Þyrli og tveir bekkir frá Slysavarnadeildinni Líf. Bekkjunum hefur verið komið fyrir í Kirkjugarðinum, á stöðum þar sem gott er að setjast niður. Bekkirnir munu koma gestum garðsins að góðum notum.
Anna Kristjánsdóttir kirkjugarðsvörður Kirkjugarðs Akraness vill koma á framfæri kærum þökkum fyrir þessar, nytsömu og fallegu gjafir.