Þann 15.október er árlegur alþjóðlegur dagur um barnsmissi.
Við ætlum í tilefni af þessum degi að bjóða upp á fræðslukvöld í Vinaminni þann 15.október kl. 20. Tilgangurinn er að fræðast um hvaða ferli fer í gang þegar svona harmleikur á sér stað og hvað við getum gert til að vera til staðar og styðja sem aðstandendur.
Sif Agnarsdóttir segir frá sinni reynslu, Jóhanna Ólafsdóttir talar um ferlið innan heilbrigðisstofnunarinnar og séra Þóra Björg fjallar um aðkomu kirkjunnar og sorgarferlið.
Það eru allir velkomnir hvort sem þau hafa tengsl við slíka upplifun eða ekki.
Einnig verður minningarstund í Akraneskirkjugarði kl.19. Við hittumst við minningarreit látinna barna.