Laugardagur 29. nóvember kl. 16 í Vinaminni
Aðventuhátíð fjölskyldunnar
Barnakór Akraneskirkju sýnir söngleikinn Gott ráð, Engilráð. Stjórnandi Katrín Valdís Hjartardóttir, undirleikari Hilmar Örn Agnarsson.
Kveikt á aðventukransi. Almennur söngur og hugleiðing á aðventu.
Heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina – verið velkomin!
Sunnudagur 30. nóvember kl. 20 í Akraneskirkju
Aðventuhátíð
Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir flytur hugleiðingu, Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson.
Hátíðleg stund í upphafi aðventu – verið velkomin!