Æskulýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn 1. mars.
Á æskulýðsdeginum fögnum við unga fólkinu í kirkjunni og tileinkum þeim daginn. Við verðum með tvær æskulýðsmessur, í Akraneskirkju og í Leirárkirkju.
Æskulýðsmessa í Akraneskirkju kl. 11. Séra Þóra Björg hefur umsjón með messunni. Barnakór Akraneskirkju krakkar úr kórskólanum syngja undir stjórn Katrínar Valdísar. Andri Hilmarsson leikur á gítar og fermingarbörn lesa bænir og taka þátt í hugvekju dagsins.
Æskulýðsmessa í Leirárkirkju kl. 11. Séra Ólöf Margrét og Brynhildur Karlsdóttir leiða stundina. Stúlknakórinn syngur.