Sunnudaginn 5. nóvember er Allra heilagra messa í kirkjum landsins. Á þeim degi minnumst við látinna ástvina og heiðrum minningu þeirra sem hafa kvatt okkur síðastliðið ár.

Við messu kl. 20 í Akraneskirkju verða lesin nöfn þeirra sem voru jarðsungin í Garða- og Sauarbæjarprestakalli frá Allra heilagra messu árið 2022. Einnig verða tendruð kertaljós til minningar um látna ástvini.

Messan er gott tækifæri til að heiðra minningu þeirra sem hafa kvatt okkur og eins að vera minnt á vonarboðskap Jesú Krists.

Eftir messu verður boðið í kirkjukaffi í Safnaðarheimilinu Vinaminni. Það væri okkur ánægja að hitta ykkur við messu þann 5. nóvember.