Haldin verður kynningarfundur fyrir væntanlega fermingarbörn og foreldra þeirra mánudaginn 26. maí kl. 19.30. Skráning í fermingarfræðsluna hefst í kjölfarið. Fermingardagur er valinn við skráningu.
Vorið 2026 verður fermt eftirfarandi daga í prestakallinu.
Akraneskirkja:
Laugardagur 28. mars kl. 10.30 og 13.30
Pálmasunnudagur 29. mars kl. 10.30 og 13.30
Laugardagur 11. apríl kl. 10.30 og 13.30
Sunnudagur 12. apríl kl. 10.30 og 13.30
Hvítasunnudagur 24. maí kl. 11
Hallgrímskirkja í Saurbæ
Sunnudagur 4. maí kl. 11
Leirárkirkja
Sunnudagur 4. maí kl. 14
Innra-Hólmskirkja
Hvítasunnudagur 24. maí kl. 14
Fermingarstarfið heitir öðru nafni skírnarfræðsla og hefur eftirfarandi meginmarkmið:
- Að kenna grundvallaratriði kristinnar trúar.
- Að vekja og efla trú á Jesú Krist, Drottin vorn og frelsara.
- Að virkja fermingarbörnin í starfi safnaðarins, t.d. í helgihaldi.
Guðsþjónustur og æskulýðsfélag
Fermingarbörnin eiga að sækja 10 guðsþjónustur yfir vetrartímann.
Vatnaskógarferð
Fermingarbörnin munu sækja fermingarnámskeið í Vatnaskógi. Brekkubæjarskóli og Heiðarskóli fara dagana 8.-10. september og Grundaskóli 10.-12.september. Vatnaskógur er skemmtilegur staður í Svínadal í Hvalfirði, þar reka Skógarmenn KFUM sumarbúðir og taka á móti fermingarbörnum á haustin. Námskeiðið er blanda fræðslu, leikja og skemmtunar.
Söfnun fermingarbarna
Á hverju hausti ganga fermingarbörn í hús og safna fjármunum handa fátækum í Afríku. Þau fá leiðbeiningar áður en þau leggja af stað, tvö og tvö saman. Með þessu skapast kjörið tækifæri fyrir þau til að meðtaka boðskap Krists um náungakærleika á áþreifanlegan hátt. Á unglingsárum, þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl, er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif.