„Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er
í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.
 Lk 2.10b.11

Guð gefi ykkur gleðileg jól og megi ljós hans lýsa í öllu ykkar lífi.

Kærar kveðjur frá sóknarnefndum, starfsfólki og prestum Garða- og Saurbæjarprestakalls.

Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá
á jólunum fyrstu var dýrðlegt að sjá.
Þá sveimuðu englar frá himninum hans
því hann var nú fæddur í líkingu manns.

Þeir sungu „hallelúja“ með hátíðarbrag:
„Nú hlotnast guðsbörnunum friður í dag.“
Og fagnandi hirðarnir fengu að sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.

Ég bið þig, ó, Drottinn, að dvelja mér hjá
að dýrðina þína ég fái að sjá.
Ó, blessaðu, Jesú, öll börnin þín hér
að búa þau fái á himnum hjá þér.