Kór Akraneskirkju og Kór Keflavíkurkirkju flytja í sameiningu rokksöngleikinn Jesús Kristur Súpergoð – valin lög úr þessum heimsfræga söngleik í útsetningu Arnórs Vilbergssonar og íslenskri þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Upprunalega verkið er eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice.
Tónleikarnir fara fram í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 18. apríl og hefjast kl. 17:00 og aukasýning klukkan 14 sama dag. Á sviði verður hátt í 100 manna kór, ásamt fjölda einsöngvara úr röðum kóranna og hljómsveitinni Postulunum.
Stjórnendur eru Arnór Vilbergsson, organisti í Keflavíkurkirkju, og Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Akraneskirkju. Í hlutverkum Jesú og Júdasar syngja Eyþór Ingi og Stebbi Jak
það er enn hægt að næla sér í miða á fyrri tónleikana inn á  midix.is