Miðvikudagur 4. mars
Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 – súpa eftir stundina í Vinaminni, kr. 1.000.
Karlakaffi í Vinaminni kl. 13:15 – Fótbolti og trú. Sr Jón Ármann Gíslason og Jóhann Þór Sigurðsson fara á kostum með sögur úr fótboltanum og sýna myndbrot af vellinum. Kaffi og spjall á eftir.
Karlakaffi einn miðvikudag í mánuði kl. 13:15
Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla.
Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 1.000