Kvöldguðsþjónusta með gospel ívafi verður í Akraneskirkju 30. ágúst kl. 20.

Katrín Valdís Hjartardóttir syngur, undirleikari er Flosi Einarsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.
Þar sem fermingarundirbúningur er hafinn eru fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til að mæta.

Eigum góða stund í kirkjunni okkar á síðsumarskvöldi.