Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpa á eftir í Vinaminni

Opið hús í Vinaminni kl. 13:15
Fróðleikur og skemmtun að hætti hússins í umsjón Ólafar Margrétar. Kaffi og spjall í lok samveru.

Verið velkomin í kirkjustarfið á miðvikudögum!

Alla  miðvikudaga er kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10. Ljúfir orgeltónar, ritningarlestur og bæn einkenna þessar stundir. Í miðri viku er gott að taka frá smá tíma og setjast niður í kirkjunni og kyrra hugann, biðja og njóta tónlistar. Að lokinni samveru er boðið upp á súpu og kaffisopa í Safnaðarheimilinu Vinaminni, ljúft er að setjast niður og næra sig, spjalla og eiga gefandi samveru í góðum félagsskap. Súpa kr. 1.000.

Opið hús er í Vinaminni  kl. 13:15 tvo miðvikudaga í mánuði .

Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins.
Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Kaffi og meðlæti í lok hverrar samveru kr. 1.000