Miðvikudaginn 29. apríl er komið að vorferð Opna hússins. Farið verður í Hvalfjörðinn fagra og í Kjósina.
Brottför kl. 12 frá Akraneskirkju
Stoppað á Bjarteyjarsandi þar sem Arnheiður Hjörleifsdóttir tekur á móti okkur með íslenskri kjötsúpu og segir frá ýmsu af söguslóðum Hvalfjarðar.
Því næst er haldið af stað í Kjósina og stoppað á bænum Hjalla þar sem við fáum okkur kaffi og vöfflur.
Við klárum svo þennan Hvalfjarðar- og Kjósarhring í síðasta lagi kl. 16.
Þátttökugjald er kr. 3.500, frekari upplýsingar í síma 433 1500
Kyrrðarstund í Akraneskirkju er kl. 12:10 en ekki boðið upp á súpu í Vinaminni.