Velkomin í starfið okkar á miðvikudögum!
Kyrrðarstund og súpa – næring fyrir líkama og sál – fyrir alla
Alla miðvikudaga er kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10. Ljúfir orgeltónar, ritningarlestur og bæn einkenna þessar stundir. Í miðri viku er gott að taka frá smá tíma og setjast niður í kirkjunni og kyrra hugann, biðja og njóta tónlistar. Að lokinni samveru er boðið upp á súpu og kaffisopa í Safnaðarheimilinu Vinaminni, ljúft er að setjast niður og næra sig, spjalla og eiga gefandi samveru í góðum félagsskap. Súpa kr. 1.000.
Opið hús
Opið hús er í Vinaminni kl. 13:15 tvo miðvikudaga í mánuði .
Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins.
Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.
Kaffi og meðlæti í lok hverrar samveru kr. 1.000
Dagsetningar 2025-2026
10. september Ferðasaga
24. september Bingó
8. október Sögur úr Öxarfirði – sr Jón Ármann Gíslason
22. október Gestir frá Grafarholti og Katrín Valdís söngkona
12. nóvember Hressi sjúkraþjálfinn Hildur Aðalbjörg Ingadóttir, mætir og fræðir okkur um heilsu og vellíðan
26. nóvember Bingó
3. desember aðventuhátíð
21. janúar Sögur frá Kvíum. Anna Kristjánsdóttir segir ferðasögu og sýnir myndir frá Kvíum í Lónafirði
28. janúar þorragleði
11. febrúar Bingó
25. febrúar Að hætti hússins
11. mars Gestir frá Bústaðakirkju
25. mars Bingó
15. apríl Heilsa og gleði
29. apríl Vorferð
13. maí Bingó
Karlakaffi
Karlakaffi einn miðvikudag í mánuði kl. 13:15
Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla.
Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 1.000
Dagsetningar 2025-2026
1. október Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segir frá nýrri bók sinni um fyrstu þátttöku Íslendinga á ólympíuleikunum
5. nóvember Ferguson-félagið. Ragnar Jónasson segir frá og sýnir myndir af gamla góða Ferguson
3. desember Aðventuhátíð
28. janúar Þorragleði
4. febrúar Haraldur Sturlaugsson sýnir gamlar myndir og segir frá
4. mars Sr Jón Ármann Gíslason hefur frá ýmsu að segja
8. apríl
6. maí