Guðsþjónusta á hlaði Innra-Hólmskirkju sunnudaginn 4. september kl. 11

Nú stendur yfir viðgerð á kirkjunni en við komum saman við kirkjuna og fögnum hausti og þökkum fyrir sumarið. Kór Saurbæjarprestakalls leiðir söng, organisti Zsuzsanna Budai. Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir.

Kaffisopi eftir stundina. Klæðum okkur eftir veðri og eigum góða samveru úti í náttúrunni!

Verið velkomin!

Akraneskirkja: Taizé-messa kl. 20

Taizé-messa á uppruna sinn að rekja til bæjarins Taizé í Suður-Frakklandi og byggist hún upp á endurteknum söngstefjum sem kalla fram hughrif kyrrðar.

Taizé sálmar, ritningarlestur, hugleiðing og bæn. Kór Akraneskirkju leiðir söng, organisti Hilmar Örn Agnarsson, prestur Ólöf Margrét Snorradóttir.

Komið og njótið kyrrðar í kirkjunni!

Verið velkomin!