Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 13
Salka Hrafns nýstúdent frá FVA, flytur ávarp
Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson
Sr Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Meðhjálpari Helga Sesselja Ásgeirsdóttir
Kaffisala Kirkjunefndarinnar í Safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 14-17
Hið árlega og margrómaða kökuhlaðborð Kirkjunefndar Akraneskirkju er ómissandi á þjóðhátíðardaginn.
Verð: 3000 kr. / 500 kr. fyrir 6-13 ára
Kirkjunefndin fagnar 80 ára afmæli sínu á þessu ári, en framlag hennar til Akraneskirkju í gegnum tíðina er ómetanlegt, með gjöfum og framlagi til safnaðarstarfs.
Tilgangur Kirkjunefndarinnar er einmitt að prýða Akraneskirkju og búa hana ýmsum nytsömum hlutum, sama á við um Safnaðarheimilið Vinaminni. Hefur Kirkjunefndin m.a. gefið messuklæði og listaverk til kirkjunnar, sem og listaverk í Vinaminni og borðbúnaðinn þar. Þá sér nefndin einnig um fermingarkyrtlana, klæða fermingarbörnin í á fermingardaginn og sjá um þrif á kyrtlunum.
Helsta fjáröflun Kirkjunefndarinnar er glæsileg kaffisalan á 17. júní.