Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Ýmislegt
Fréttasafn
Vorferð Opna hússins 7. maí – mæting kl. 11:15
Vorið er komið og um að gera að bregða undir sig betri fætinum! Dagskrá Opna hússins að þessu sinni er vorferð í Reykholt miðvikudaginn 7. maí. Mæting er í Vinaminni kl. 11:15 og brottför 11:30 Í Reykholti hittum við félaga okkar frá Bústaðakirkju og snæðum hádegisverð á Fosshóteli, sem samanstendur af súpu, kjúklingabringu og smá eftirrétt. Við förum svo í Snorrastofu og fáum fróðlegt erindi þar. Þá er gengið um svæðið við kirkjuna undir [...]
Vorhátíð og fermingar sunnudaginn 4. maí
Sunnudaginn 4. maí verður vorhátíð sunnudagaskólans í Akraneskirkju kl. 11. Þar ætlum við að fagna sumri og bjóðum upp á pylsur og hoppukastalafjör. Einnig verða fermingarguðsþjónustur í Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 11 og í Leirárkirkju kl. 14.
Karlakaffi í Vinaminni miðvikudaginn 30. apríl kl. 13.15
Karlakaffi í Vinaminni í miðvikudaginn 30. apríl klukkan 13:15 Sigurbjörn H. Magnússon sýnir myndir af jeppum og fjöllum. Haldið áfram þar sem frá var horfið í síðasta karlakaffi. Kaffi og spjall að venju, vonumst til að sjá ykkur sem flesta.
Karlakóratónleikar í Vinaminni í kvöld föstudaginn 25 apríl kl. 19.30 – aðgangur ókeypis
Í kvöld föstudaginn 25 apríl kl 19.30 verða glæsilegir karlakórs tónleikar í safnaðarheimilinu Vinaminni þar sem þrír karlakórar stíga á stokk og skemmta með söng og gleði. Kórarnir sem fram koma eru Karlakórinn Saqqarsik frá Qaqortoq á Grænland sem er vinaheimsókn til Íslands dagana, en Qaqortoq á Grænlandi er vinabær Akraness. Þar koma einnig fram Karlakórinn Söngbræður undir stjórn Viðars Guðmundssonar og Karlakórinn Smaladrengir. Aðgangur er ókeypis
Dymbilvika og páskar
Páskarnir eru framundan, helgasta hátíð kristinna manna. Bænadagar dymbilviku eru aðdragandi páskanna og að venju verður helgihald í Akraneskirkju og Hallgrímskirkju í Saurbæ þessa daga og á páskum. Verið velkomin til kirkju! Akraneskirkja Pálmasunnudagur 13. apríl Kl. 10:30 Ferming Skírdagur 17. apríl Kl. 20 Kvöldmessa og Getsemane-stund. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson, fiðla Hrefna Berg. Sr Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Í lok messu verður altarið afskrýtt og ljósin slökkt Föstudagurinn langi [...]
Fermingar 12. og 13. apríl
Fermt verður í Akraneskirkju 12. og 13. apríl. Ferming er hátíðsdagur í lífi ungmennanna og það er sannarlega spenna í loftinu þegar skemmtilegum fermingarvetri lýkur. Í fermingarthöfninni staðfesta börnin skírn sína og þann vilja að gera Jesú Krist að leiðtoga lífsins. Um leið er athöfnin fyrirbæn, þar sem beðið er fyrir börnunum og framtíð þeirra. Við biðjum Guð um að blessa öll fermingarbörn vorsins og fjölskyldur þeirra. Fermingar laugardaginn 12. apríl kl. 10.30 [...]
Opið hús 9. apríl kl. 13:15
Miðvikudaginn 9. apríl kl. 13:15 er Opið hús í Vinaminni. Hildur Aðalbjörg Ingadóttir sjúkraþjálfi mætir hress og hjálpar okkur að hita upp fyrir vorið. Kyrrðarstund og súpa á sínum stað
Fermingar vorið 2026
Vorið 2026 verður fermt eftirfarandi daga í prestakallinu. Akraneskirkja: Laugardagur 28. mars kl. 10.30 og 13.30 Pálmasunnudagur 29. mars kl. 10.30 og 13.30 Laugardagur 11. apríl kl. 10.30 og 13.30 Sunnudagur 12. apríl kl. 10.30 og 13.30 Hvítasunnudagur 24. maí kl. 11 Hallgrímskirkja í Saurbæ Sunnudagur 4. maí kl. 11 Leirárkirkja Sunnudagur 4. maí kl. 14 Innra-Hólmskirkja Hvítasunnudagur 24. maí kl. 14 Skráning í fermingarfræðslu næsta vetrar hefst í lok [...]
Fermingar 5. og 6. apríl
Fermingar hefjast í Akraneskirkju helgina 5. - 6. apríl en fermt verður í tveimur athöfnum báða dagana. Ferming er hátíðsdagur í lífi ungmennanna og það er sannarlega spenna í loftinu þegar skemmtilegum fermingarvetri lýkur. Í fermingarthöfninni staðfesta börnin skírn sína og þann vilja að gera Jesú Krist að leiðtoga lífsins. Um leið er athöfnin fyrirbæn, þar sem beðið er fyrir börnunum og framtíð þeirra. Við biðjum Guð um að blessa öll fermingarbörn vorsins og [...]
Strokið um strengi
Velkomin á tónleika í Vinaminni í kvöld kl. 20 á vegum Kalman- tónlistarfélags Akraness og Kórs Akraneskirkju. Tónleikarnir bera yfirskriftina ,,Strokið um strengi" og eru tileinkaðir Þórarni Guðmundssyni tónskáldi, sem einmitt var fæddur þennan dag. Fram koma Kór Akraneskirkju undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, Björg Þórhallsdóttir sópran, Ívar Helgason tenór, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari. Afkomendur Þórarins kynna, sýna kvikmynd og segja sögur af tónskáldinu. Aðgangseyrir er kr. 3000 og allir [...]
Kirkjulistavika – viðburðir framundan: Sálmasöngskvöld, ljósmyndasýning og tónleikar
Kirkjulistavika prestakallsins hófst í gær, sunnudaginn 23. mars, og fór vel af stað. Setning hennar var við guðsþjónustu í Hallgrímskirkju í Saurbæ og um leið opnuð sýning á útgáfum Passíusálma Hallgríms Péturssonar sem eru í eigu kirkjunnar. Elstu útgáfurnar eru frá 18. öld en einnig er að finna erlendar þýðingar á sálmunum. Sýningin ber yfirskriftina Upp, upp mín sál og mun standa fram að páskum. Um kvöldið var bláa messan í Akraneskirkju og fylltu [...]
Kirkjulistavika Garða- og Saurbæjarprestakalls 23.-30. mars
Kirkjulistavika 23.-30. mars Garða- og Saurbæjarprestakall í samstarfi við Kalman – tónlistarfélag Akraness verður með glæsilega dagsskrá í Kirkjulistaviku, síðustu dagana í mars. Fjölbreyttar messur, sýning á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar, tónleikar og sálmasöngskvöld er meðal þess sem boðið er upp á. Dagskrána má sjá hér að neðan. Í Garða- og Saurbæjarprestakall, sem nær yfir Akranes og í Hvalfjarðarsveit, eru fjórar kirkjur og fer dagskráin fram í þremur þeirra. Kórar kirknanna koma fram ásamt fleira [...]