Frá Betaníu til Emmaus
Í dymbilviku og um páska verður sem fyrr ríkuleg dagskrá í Hallgrímskirkju í Saurbæ – verið velkomin!

Dagskráin er alla daga frá pálmasunnudegi til annars páskadags og fer fram í kirkjunni en einnig við Hallgrímslind og Hallgrímsstein og á grunni gömlu kirkjunnar við gröf Hallgríms.

Dagskráin er klukkan sex síðdegis og tekur um 45 mínútur.

Umsjón með dagskránni hefur séra Kristján Valur Ingólfsson.

 

Á skírdag kl. 16.00 verða kórtónleikar sem óhætt er að mæla með.

Mótettukórinn í Reykjavík flytur tvær mótettur eftir J. S. Bach, Lobet den Herren og Jesu meine Freude og einnig þekkt íslensk kórverk og sálma við texta Hallgríms Péturssonar. Mótetturnar eru meðal þekktustu verka tónskáldsins og taldar með kröfuhörðustu kórverkum barokktímans.

Stjórnandi kórsins er Stefan Sand og orgelleikari er Guðrún Óskarsdóttir

Hollvinafélag Hallgrímskirkju í Saurbæ styrkir þennan viðburð og er aðgangur ókeypis.

 

Á föstudaginn langa verða Passíusálmarnir lesnir í heild sinni frá kl. 13.00 – 18.15

Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir,  les fyrsta sálm og Kór Saurbæjarprestakalls hins forna syngur. Stjórnandi er Margrét Bóasdóttir og Steinunn Árnadóttir leikur á orgel. Síðan taka við 24 lesarar og milli lesta flytja Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, sópran og Steinunn Árnadóttir, orgel, texta Hallgríms við lög sem samin hafa verið á 20. og 21. öld. Öll lögin er að finna í sálmabók þjóðkirkjunnar sem kom út haustið 2022. 25. passíusálmur verður lesinn úti við leiði sálmaskáldsins.

Eintök af Passíusálmunum verða til láns svo hægt er að njóta flutningsins og fylgjast með á bókinni.

Allir eru velkomnir og geta komið og farið eins og tími þeirra leyfir.

 

Laugardag fyrir páska er miðnæturmessa klukkan 22.30 og kl. 08 á páskadag er hátíðarmessa og morgunverður í Saurbæ.

Í messunni verður nýtt orgel sem staðsett er í fremst í kór kirkjunnar helgað til þjónustu. Orgelið er gjöf frá Grensássöfnuði í Reykjavík en Björgvin Tómasson orgelsmiður hefur yfirfarið hljóðfærið og sett upp í kirkjunni.

Á annan páskadag er göngumessa sem hefst klukkan 14.00. Gengið að Hallgrímssteini og endað á grunni gömlu kirkjunnar.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til þess að njóta fjölbreyttra möguleika til íhugunar og kirkjugöngu á þessum helga tíma kirkjuársins.

Einnig má benda á nýjan göngustíg frá Saurbæ til sjávar þar sem gott að er að njóta útsýnis og sjávarloftsins.