Nú í byrjun september tók nýr organisti, Hilmar Örn Agnarsson við starfi í Akraneskirkju. Hilmar Örn er ráðinn til eins árs en Sveinn Arnar Sæmundsson er í ársleyfi.

Hilmar Örn hefur áður verið organisti í Skáholtsdómskirkju á árunum 1991 til loka árs 2008, þar stjórnaði hann öflugu tónlistarlífi og kórastarfi. Í upphafi árs 2009 var hann ráðinn organisti Kristskirkju í Landakoti, síðustu ár hefur hann starfað sem organisti og kórstjóri í Grafarvogskirkju.

Hilmar Örn mun stjórna Kór Akraneskirkju og er þegar byrjaður að vinna að metnaðarfullri dagskrá.

Við bjóðum Hilmar Örn velkominn til starfa um leið og við þökkum Sveini Arnari fyrir gott samstarf og óskum honum velfarnaðar á nýjum stað.