Kalman – tónlistarfélag Akraness býður til einstakra tónleika í Vinaminni fimmtudaginn 29. október kl. 20 þar sem þýski tónlistarhópurinn Ensemble WAKS flytur dagskrá sem nefnist Sofias Travels.
Um er að ræða fjölbreytt aog áhrifamikla tónlistardagskrá þar sem jiddísk tónlist, sögulegar upptökur, nýjar útsetningar og frumsamin tónlist fléttast saman við frásögn og margmiðlun.
Ensemble WAKS skipa Inge Mandos, söngur og upplestur, Hans-Christian Jaenicke, fiðla, og Klemens Kaatz, píanó og harmonikka. Auk þeirra fá gamlar raddir af vaxhólkum að hljóma á ný og tengja þannig fortíð og nútíð á einstakan hátt.
Sofia’s Travels sækir innblástur í ævi og störf sovésk-jiddísku tónlistarþjóðfræðingsins Sofiu Magid (1892–1954). Hún áttaði sig á því að jiddísk söng- og tónlistarhefð í Austur-Evrópu ætti á hættu að glatast. Vopnuð hljóðrita og vaxhólkum ferðaðist hún um Úkraínu og Hvíta-Rússland og varðveitti raddir og söng jiddískra söngvara fyrir komandi kynslóðir.
Lögin sem Sofia safnaði í samfélögum sem höfðu orðið illa úti í borgarastyrjöld, ofsóknum og hungri bera með sér sterkar sögur fólks og tíma. Ensemble WAKS hefur endurskapað fjórar af ferðum hennar og fléttar saman lögunum sem hún varðveitti, eigin tónsmíðum hópsins, nútímalegum útsetningum, upprunalegum hljóðritum og upplestri úr ímyndaðri ferðadagbók Sofiu. Myndvörp og hljóðupptökur bæta enn einu lagi við frásögnina og færa raddir horfins heims inn í nútímann.
Vinaminni, Akranesi
28. október
Kl. 20
Miðaverð: 5.500 kr.
Kalmansvinir: 4.500 kr.
Miðasala er við innganginn
NÆSTU VIÐBURÐIR KALMAN
Föstudagur 20. nóvember kl. 20 – Vinaminni
Hljómsveitin Bardukha
Balzamer sveitin Bardukha leikur sígauna- og balkanska tónlist
Hjörleifur Valsson fiðla
Ástvaldur Traustason harmonika
Birgir Bragason kontrabassi
Steingrímur Guðmundsson slagverk (darbouka)
Sunnudagur 13. desember kl. 16 – Bíóhöllin
Gleði- og friðarjól – Jólatónleikar
Kór Akraneskirkju
Strengjasveit
Sérstakur gestur: Pálmi Gunnarsson
Gamlársdagur 31. desember kl. 16 – Akraneskirkja
Hátíðartónar við áramót
Jóhann Stefánsson trompet
Anna Nikiulásdóttir franskt horn
Hrefna Berg Pétursdóttir fiðla
Hilmar Örn Agnarsson orgel