Alla miðvikudaga er kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10. Ljúfir orgeltónar, ritningarlestur og bæn einkenna þessar stundir. Í miðri viku er gott að taka frá smá tíma og setjast niður í kirkjunni og kyrra hugann, biðja og njóta tónlistar. Að lokinni samveru er boðið upp á súpu og kaffisopa í Safnaðarheimilinu Vinaminni, þar sem er gott að setjast niður og næra sig, spjalla og eiga gefandi samveru í góðum félagsskap. Súpa kr. 1.000.

Miðvikudaginn 28. október er Opið hús í Vinaminni kl. 13:15. Að þessu sinni kemur Hildur Ingadóttir sjúkraþjálfi í heimsókn og kynnir Hreyfidagatalið sem hún og Svandís Björk Guðmundsdóttir gáfu út á dögunum. Hildur er okkur að góðu kunn og alltaf mikil stemmning þegar hún kemur til okkar í Opið hús, með æfingar fyrir líkama og huga. Kaffi og góðgæti á eftir.

Opið hús er fyrir alla, konur og kalla þar sem áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins.

Verið velkomin!