Nú spilum við jólabingó í Vinaminni kl. 13:15 miðvikudaginn 22. nóvember. 500 kr. fyrir spjald og kaffi.

Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 eins og alla miðvikudaga og dýrindissúpa í Vinaminni á eftir.

Starfið á miðvikudögum er opið öllum – verið velkomin!

Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15.
Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins.
Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Kaffi og meðlæti í lok hverrar samveru kr. 500