Velkomin í bænastund og opið hús

Fyrsta opna hús á nýju ári er miðvikudaginn 11. janúar, dagskráin hefst kl. 13:15 og lýkur um 14:30.
Hallbera Jóhannesdóttir kennari, kemur í heimsókn og segir frá af sinni alkunnu snilld.

Opið hús er annan hvern miðvikudag í Vinaminni kl. 13:15. Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins. Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Hér má sjá dagskrána fram á vorið.

Kaffi og meðlæti í lok hverrar samveru, kr. 500.

 

Bænastund og súpa – næring fyrir líkama og sál

Alla  miðvikudaga kl. 12:10.

Ljúfir orgeltónar, ritningarlestur og bæn.
Í miðri viku er endurnærandi að taka frá smá tíma,  setjast niður í kirkjunni og kyrra hugann, biðja og njóta tónlistar.

Að lokinni bænastund er boðið upp á súpu og kaffisopa í Safnaðarheimilinu Vinaminni, þá er gott að setjast niður og næra sig, spjalla og eiga gefandi samveru í góðum félagsskap.

Allir velkomnir í bænastund og súpu!