Við ætlum að bjóða upp á kirkjunámskeið í Ölver föstudaginn 30. október næstkomandi. Farið verður frá Vinaminni kl. 13:30 og komið til baka kl. 20:00. Það verður fræðsla og alls konar skemmtilegir leikir. Við fáum kaffi og kvöldverð og endum svo námskeiðið á alvöru sumarbúðakvöldvöku áður en rútan skutlar okkur aftur heim.
Það eru allir krakkar velkomnir á aldrinum 10-12 ára og þátttökugjald er 5.000 kr. Nánari upplýsingar veitir Þóra á thora@akraneskirkja.is
Skráning fer fram HÉR