Hallgrímshátíð 2026 í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Laugardagur 24. október 

Tónleikar kl. 16
Sönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar flytur fagra og sjaldheyrða tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar.  Flytjendahópurinn er óvenjulegur; sönghópur karlaradda, forn blásturshljóðfæri, mezzósópran og orgel. Aðgangur er ókeypis.

Sunnudagur 25. október
Hátíðarmessa kl. 14

Frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar, prestar prestakallsins þjóna ásamt sr. Kristjáni Val Ingólfssyni. Kór Saurbæjarprestakalls syngur og Benedikt Kristjánsson  og Ásta Marý Stfánsdóttir syngja einsöng. Organisti er Jóhanna Marín Óskardóttir. Messukaffi í Vatnaskógi eftir messu.

Dagskrá kl. 16:30
Sr. Kristján Valur flytur erindi um útgáfur Passíusálmanna og þess minnst að 360 ár eru liðin frá fyrstu útgáfu Passíusálmanna, en þeir voru prentaðir á Hólum í Hjaltadal árið 1666.

Tónlistin er tileinkuð minningu Smára Ólasonar, (1946-2023), organista og kirkjutónlistarfræðings sem hefði orðið áttræður í ár. Smári safnaði, rannsakaði, skráði á nótur og útsetti hin „gömlu“ lög við Passíusálmana sem hljóðrituð voru víðs vegar um landið á síðustu öld. Ásta Marý Stefánsdóttir sópran og Guðmundur Sigurðsson organisti flytja sálmalög í útsetningu Smára og Guðmundur leikur orgelverk samin út frá stefjum sálmanna eftir Smára Ólason.

Allir eru hjartanlega velkomnir á Hallgrímshátíð í Saurbæ.