Í Hallgrímskirkju í Saurbæ verður messa klukkan átta að kvöldi Öskudagsins, miðvikudaginn 22.febrúar.

Í þessari messu , við upphaf 40 daga föstu allt til páska, er að gömlum sið helguð aska sem vætt er vatni og teiknaður kross á enni þeirra sem það vilja, til að minna á inntak föstutímans, iðrun og yfirbót og einlægni lífs og sálar í eftirfylgdinni við frelsarann Jesú. Krist. Öskudagsmessan er fyrsta föstumessan.

Föstumessur Garða- og Saurbæjarprestakalls verða hvert miðvikudagskvöld klukkan átta að kvöldi alla föstuna í Hallgrímskirkju í Saurbæ.

Velkomin til kirkju!