Kjörnefnd Hafnarfjarðarprestakalls í Kjalarnessprófastsdæmi valdi Sr. Jónínu Ólafsdóttur, prest á Akranesi, sem nýjan sóknarprest í Hafnarfjarðarprestakalli. Hún mun taka til starfa þar þann 1. mars nk. Umsóknarfrestur um Hafnarfjarðarprestakall, rann út 9. nóvember s.l.  Auglýst var eftir sóknarpresti til þjónustu og miðað við að viðkomandi gæti hafið störf 1. desember eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að ákvörðunum um ráðningu lægi fyrir.

 

Kveðja frá Jónínu

Kæru vinir í Garða- og Saurbæjarprestakalli

Í lok október á síðasta ári ákvað ég að sækjast eftir stöðu sóknarprests við Hafnarfjarðarprestakall. Þetta var erfið ákvörðun en eftir langt og strangt umsóknarferli fékk èg þær fréttir í síðastliðinni viku að ég hefði verið valin í starfið. Tækifærin koma ekki alltaf á þeim tímum sem eru manni hentugastir og hefði èg mjög gjarnan viljað stoppa lengur við í ykkar ágæta prestakalli þar sem mér hefur verið afskaplega vel tekið.

Um leið og ég kveð ykkur vil ég þakka einstök kynni á liðnu ári hér í prestakallinu. Það var mér mikil gæfa að fá að þjóna þessu vaxandi prestakalli og fá að vinna með því góða fólki sem starfar í söfnuðunum fjórum. Hér hef ég kunnað afskaplega vel við mig og mun kveðja með miklum söknuði. Mig langar sérstaklega að fá að þakka samstarfsfólki mínu við Akraneskirkju samfylgdina og einstaklega gott samstarf.

Kærar kveðjur,
Sr. Jónína Ólafsdóttir