Opið hús í Vinaminni kl. 13:15

Sögur og söngur fléttað saman, Hilmar leikur undir, söngfuglar frá tónlistarskólanum ásamt fleirum syngja. Sögur af ömmum og mömmum og fleiri hvunndagshetum í bland við gamlar dægurlagaperlur.

Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15.
Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins.
Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Kaffi og meðlæti í lok hverrar samveru