Jesús mælti:
Það sem mönnum er um megn, það megnar Guð.
(Lúk. 18,27)
Hiti: 7,0°C
Vindur: SA 4m/s
Mestur vindur: 10m/s
Mesta vindhviða: 14m/s
Vegahiti: 6,1°C
Rakastig: 83%
Alexander Stanley
For: Minney Ragna Eyþórsdóttir
og Sigvaldi Stanley Kibler
(5. febrúar)
Marinó Heiðar
For: Eva Rakel Eyþórsdóttir
og Guðlaugur Stefán Þrastarson
(5. febrúar)
Grétar Páll
For: Dagrún Björk Sigurðardóttir
og Sigurjón Pálsson
(4. febrúar)
Svanur Ingi Halldórsson
og Helga Björk Helgadóttir
Stekkjarholti 16
(4. febrúar)
Fermingarstarfið heitir öðru nafni skírnarfræðsla og hefur eftirfarandi meginmarkmið:
Fermingarbörnum er kennt í Grundaskóla á miðvikudögum og í Safnaðarheimilinu Vinaminni á mánudögum og miðvikudögum. Fermt verður dagana 18. mars, 25. mars, 1. apríl og 15. apríl 2012.
Tvær athafnir verða alla dagana, kl. 10.30 og 14, nema 18. mars, þá verður fermt kl. 14.
Fermingarbörnin eru skyldug að sækja 6 guðsþjónustur (fjölskylduguðsþjónustur) yfir vetrartímann.
Fjölskylduguðsþjónustur verða eftirtalda sunnudaga í vetur:
9. október
13. nóvember
11. desember
15. janúar (2012)
12. febrúar
4. mars (æskulýðsdagurinn).
Sömuleiðis er ætlast til að ungmennin taki þátt í Æskulýðsfélagi kirkjunnar og sæki þar fundi þrisvar fyrir jól og þrisvar eftir áramót. Fundirnir eru á þriðjudagskvöldum kl. 19.30 (húsið opnað kl. 19.15) í húsnæði KFUM og K við Garðabraut. Þar er ýmislegt gert til fróðleiks, uppbyggingar og afþreyingar!
Fermingarbörnin sækja árlega fermingarnámskeið á haustdögum í Skálholti. Farið er í tveim hópum (sinn skólinn hvor) og er um dagsferð að ræða.
Skálholt er bæði helgur staður og merkur. Þar sat biskup Akurnesinga fyrr á öldum. Fermingarbörnin fá að kynnast sögu staðarins og njóta helgi og kyrrðar í hinni glæsilegu Skálholtsdómkirkju.
Margt annað er gert til styrkingar og ánægju. Skálholtsferðir fermingarbarna hafa ævinlega notið mikilla vinsælda!
Á hverju hausti ganga fermingarbörn í hús og safna fjármunum handa fátækum í Afríku. Þau fá leiðbeiningar áður en þau leggja af stað, tvö og tvö saman.
Með þessu skapast kjörið tækifæri fyrir þau til að meðtaka boðskap Krists um náungakærleika á áþreifanlegan hátt. Á unglingsárum, þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl, er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif.
Haustið 2011 söfnuðu fermingarbörn á Akranesi 360 þús. kr. til hjálpar bágstöddum í Afríku. Þeir fjármunir komu sér mjög vel fyrir marga, eins og nærri má geta! Þetta er stórfé á mælikvarða Afríkubúa!
Hér verður birtur listi í nóvember með nöfnum fermingarbarna, fermingardögum og tímasetningum þegar frestur til þess að gera breytingar verður liðinn. Fram að því verður listinn póstsendur til foreldra.