Hildur Aðalbjörg Ingadóttir, sjúkraþjálfari, mætir hress í opna húsið þennan síðasta miðvikudag í október. Hún fræðir okkur um hreyfingu og ýmislegt sem hægt er að gera til að bæta líðan.

Stundin hefst kl. 13:15, kaffi og spjall í lokin.

Kyrrðarstundin er að sjálfsögðu kl. 12:10 í Akraneskirkju og súpa á eftir í Vinaminni, kr. 500.

Velkomin í starfið okkar á miðvikudögum!

Kyrrðarstund og súpa – næring fyrir líkama og sál

Alla  miðvikudaga er kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10. Ljúfir orgeltónar, ritningarlestur og bæn einkenna þessar stundir. Í miðri viku er gott að taka frá smá tíma og setjast niður í kirkjunni og kyrra hugann, biðja og njóta tónlistar. Að lokinni samveru er boðið upp á súpu og kaffisopa í Safnaðarheimilinu Vinaminni, ljúft er að setjast niður og næra sig, spjalla og eiga gefandi samveru í góðum félagsskap.

Opið hús 

Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15.
Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins.
Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Kaffi og meðlæti í lok hverrar samveru kr. 500