„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.

Skókassarnir verða sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.

Tekið er á móti skókössum í safnaðarheimili Akraneskirkju 30. október – 3. nóvember á milli klukkan 10:00 – 15:00.

Tengiliður fyrir ,,Jól í skókassa“ á Akranesi er Irena Rut Jónsdóttir (868-1383)

Á Akranesi er hægt að kaupa kassa í Axelsbúð á opnunartíma.

Hvað á að vera í skókassanum?

  1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í skóbúðum og mælt er með að fólk tryggi sér kassa í tæka tíð.
  2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). Hér til hægri á síðunni (útprentanlegt efni) má finna tilbúinn merkimiða. Klippið miðann út, merkið við réttan aldursflokk og límið ofan á skókassann. Einnig er hægt að útbúa sína eigin merkimiða og merkja aldur og kyn á þá.
  3. Setjið 500-1.000 krónur  efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
  4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann.

Gjafir í skókassana

Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:

  • Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.
  • Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
  • Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
  • Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
  • Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.

Hvað má ekki fara í skókassana?

  • Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
  • Matvara.
  • Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar.
  • Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur.
  • Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl.
  • Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.
  • Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana.

Nánari upplýsingar má finna hér: https://www.kfum.is/skokassar/skokassar/