ÞÞ

ÞÞ2021-05-06T12:59:52+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Fréttasafn

Opið hús í Vinaminni 20. mars

Góðir gestir frá Bústaðarkirkju koma í heimsókn í Opna húsið í Vinaminni miðvikudaginn 20. mars kl. 13:15. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni í Bústaðakirkju kemur með hópinn sinn úr opna húsinu þar. Steini Dúmbó og Hilmar fara á kostum eins og þeim er lagið. Söngur, sögur og önnur skemmtun ásamt veglegu kaffiborði. Verið velkomin! Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 alla miðvikudaga og súpa í Vinaminni á eftir.

19. mars, 2024|

Helgiganga og blá messa 17. mars

Sunnudaginn 17 mars er fjölbreytt dagskrá í prestakallinu. Í Akraneskirkju er sunnudagaskóli kl. 11 þar Jóhanna Elísa tekur á móti börnum og fullorðnum með söng og biblíusögu. Á sama tíma er helgiganga frá Hallgrímskirkju í Saurbæ. Gengin verður stutt vegalengd frá kirkjunni, stoppað á nokkrum stöðum þar þættir úr píslarsögunni verða lesnir og hugleiddir. Gangan er auðvelt og við flestra hæfi. sr. Þráinn Haraldsson leiðir gönguna. Um kvöldið er kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20, [...]

15. mars, 2024|

Sunnudagur 10. mars

 Ég er hið lifandi brauð sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum til lífs.“ Jóh. 6.51 Helgihald í Garða- og Saurbæjarprestakalli fjórða sunnudag í föstu: Akraneskirkja Fjölskyldumessa kl. 11 - sr. Ólöf Margrét leiðir stundina og Jóhanna Elísa leikur á píanóið. Biblíusaga, söngur og bæn Innra-Hólmskirkja Kvöldmessa kl. 20 - sr. Ólöf Margrét þjónar, Kór Saurbæjarprestakalls syngur, [...]

7. mars, 2024|

Sunnudagur 25. febrúar

Velkomin til kirkju! Sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11 Söngur og biblíusaga. Börnin fá mynd dagsins. Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20 Katrín Valdís Hjartardóttir syngur ásamt félögum úr Kór Akraneskirkju. Organisti Hilmar Örn, sr. Ólöf Margrét leiðir stundina og prédikar um nokkrar af konunum í Biblíunni í tilefni konudagsins.  

22. febrúar, 2024|

Opið hús 21. febrúar – Sögustund með Þóru Gríms

Miðvikudaginn 21. febrúar er opið hús í Vinaminni kl. 13:15 Þóra Gríms, sagnakona, kemur í heimsókn og verður með sögustund eins og henni er lagið. Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpa að stund lokinni í Vinaminni. Verið velkomin!  

20. febrúar, 2024|

Fræðslukvöld í Akraneskirkju: Dæmisögur Jesú

Fræðslukvöld Garða- og Saurbæjarprestakalls halda áfram og að þessu sinni mun sr. Þráinn Haraldsson fjalla um dæmisögur Jesú og saman munum við skoða þessar sögur sem margar hverjar hafa haft mótandi áhrif á menningu okkar. Hverjar eru dæmisögurnar og afhverju sagði Jesú dæmisögur. Verið velkomin á fræðslukvöld í Akraneskirkju

17. febrúar, 2024|

Sunnudagur 18. febrúar

Fyrsti sunnudagur í föstu ,,Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins” 1. Jóh. 3.8,,Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins” 1. Jóh. 3.8 Nú er fastan  hafin og litur þess tíma í kirkjunni er fjólublár, litur iðrunar og yfirbótar. Langafastan hefst með öskudegi og er hún fjörutíu dagar og lýkur á páskadag. Fastan minnir á þá fjörutíu daga er Jesús fastaði í eyðimörkinni og  mætti sínum [...]

14. febrúar, 2024|

Opið hús miðvikudaginn 7. febrúar

Velkomin í starfið okkar á miðvikudögum! Miðvikudaginn 7. febrúar er opið hús í Vinaminni. Dagskráin hefst kl. 13:15 og verður að hætti hússins. Myndasýningar, létt hugarleikfimi og ýmiss fróðleikur. Láttu sjá þig! Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15. Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins. Kaffi og meðlæti í lok [...]

6. febrúar, 2024|

Þakkir til Kirkjunefndar Akraneskirkju og kvenfélaga Hvalfjarðarsveitar

1. febrúar er dagur kvenfélagskonunnar en kvenfélög víða um land sinna óeigingjörnu starfi í þágu samfélagsins sem vert er að minnast og þakka. Söfnuðir prestakallsins njóta ekki síður mikilvægs framlags kvenfélaga og viljum við þakka það sérstaklega. Má þar nefna stuðning við framkvæmdir eða kaupa á sálmabókum eða öðru sem nýtist í kirkjulegu starfi. Við Akraneskirkju starfar kvenfélag sem heitir Kirkjunefnd Akraneskirkju. Konurnar er nefndinni hafa verið ötular við að safna fé í gegnum [...]

1. febrúar, 2024|

Karlakaffi miðvikudaginn 31. janúar kl. 13:15

Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur er gestur Karlakaffisins nk. miðvikudag kl. 13:15. Hann gefur okkur innsýn í starf sitt og áhugamál. Verið velkomnir! Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla. Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 500

29. janúar, 2024|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top